Heimildarmyndin ,,Súðbyrðingur – saga báts" sýnd í Bíó Paradís

Almennar sýningar á heimildamyndinni Súðbyrðingur – saga báts hefjast 22.
janúar og standa til 10. febrúar í Bíó Paradís við Hverfisgötuna.
Sýningartíma má sjá í dagblöðum og á alnetinu undir www.bioparadis.is
(dagskrá vikunnar).

Fjórir menn taka sér fyrir hendur að smíða bát eftir Staðarskektunni, sem
fúnað hefur í grasi í Reykhólasveit.  Samhliða því sem nýi báturinn tekur
á sig mynd er sögð saga bátasmíða á Norðurlöndum.  Byrjað er á kilinum,
sem þróaðist frá eintrjáningi steinaldar, og svo dýpkar frásögnin eftir
því sem báturinn er byrtur, sagt frá skinnbátum bronsaldar og helluristum,
fórnum á bátum og mönnum til ókunnra guða, en elsti súðbyrðingurinn sem
vitað er um varðveittist á einum slíkum blótstað, sýnd hin glæstu skip
víkingaaldar, sagt frá selveiðimönnum í Eystrasaltinu sem lögðust út á
ísinn og sváfu í einkennilega löguðum bátum sínum, og áfram er smíðað,
böndin og borðstokkarnir, og þá er komið til Færeyja þar sem keppt er í
róðri í nýrri gerð af súðbyrðingum á Ólafsvöku.  Að lokum er báturinn klár
og seglin saumuð og þá er sjósetning og siglt út á fjörðinn, til fortíðar
smiðanna sjálfra, þar sem súðbyrðingar voru smíðaðir og notaðir  – heima.
Báturinn er trúarlegt tákn. Í þessum ,,báti” sem kvikmyndin er, rúmast
margt, svo sem handbragð, heiðindómur, verslunarsaga, veiði, dauði og
hátíðir. Í gegnum báta og skip tengjast hættir og saga þeirra þjóða sem
búa á Norðurlöndum.
Ásdís Thoroddsen leikstýrir og Hálfdán Theódórsson kvikmyndar.  Tónlistina
semur Þórður Magnússon.  Steinþór Birgisson litgreinir og Gunnar Árnason
blandar hljóð.  Smiðir eru Hafliði Aðalsteinsson, Eggert Björnsson, Hjalti
Hafþórsson og Aðalsteinn Valdimarsson.  Myndin var tekin upp á Íslandi,
Danmörku, Noregi, Færeyjum, Finnlandi, Svíþjóð og Þýskalandi.
Framleiðendur eru Ásdís Thoroddsen og Fahad Falur Jabali á vegum Gjólu
kvikmyndagerðar.