Söguslóðir er vefur Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hefur það hlutverk að miðla rafrænum gögnum um íslenska sögu og sagnfræði. Á Söguslóðum er að finna fjölbreyttar upplýsingar sem nýtast til rannsókna, kennslu og náms í íslenskri sagnfræði en þar er einnig miðlað fróðleik um íslenska sagnfræði almennt. Meðal efnis sem vefurinn hefur að geyma eru:
- Efnisskrár tímarita og lokaritgerðir í sagnfræði
- Gagnasöfn um mikilvægar heimildir fyrir sagnfræðirannsóknir
- Textaheimildir, myndir og kort á rafrænu formi
- Vefsíður og hlaðvörp um söguleg viðfangsefni
- Söfn og félög sem tengjast sagnfræði
- Nám og kennsla í sagnfræði á háskólastigi
- Rannsóknaverkefni einstaklinga og hópa
- Rannsóknasjóðir og styrkir á sviði sagnfræði
Umsjónarmaður Söguslóða er Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði og aðstoð við uppsetningu vefsins hefur Guðmundur Hörður Guðmundsson annast. Allar ábendingar og tillögur um efni og framsetningu þess eru vel þegnar og sendist á netfang Söguslóða: soguslodir@hi.is
Myndir í borða Söguslóða eru valdar af Jökli Sævarssyni safnverði á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og Guðmundi Jónssyni.