Verkefni í vinnslu
Dysjar hinna dæmdu
Rannsóknaverkefni undir stjórn Steinunnar Kristjánsdóttur fornleifafræðings. Markmið verkefnisins er að leita upplýsinga um þá einstaklinga sem voru teknir af lífi hérlendis frá 1550-1830. Einnig er markmiðið að skrá þá staði þar sem aftökurnar fóru fram og leita mannvistarleifa. Auk þess verða aftökurnar settar í sögulegt og félagslegt samhengi með tilliti til veðurfars og stjórnarhátta. Á vef verkefnisins má nú þegar finna ýmsar upplýsingar um aftökurnar.
Goðafræðiverkefnið
Markmið verkefnisins er að gefa út nokkurra binda yfirlitsrit um norræna goðafræði þar sem gerð verður grein fyrir öllum helstu heimildum um hana, þ.e. fornleifum, örnefnum og rituðu máli.
Norrænir menn í Austurvegi
Rannsóknarverkefni styrkt af Rannsóknasjóði (RANNÍS) frá 2019 til 2021. Verkefnið fjallar um víkingaferðir norrænna manna í austurátt, yfir sléttur Rússlands og alla leið til Konstantínópel. Hafa víkingar í Austurvegi iðulega verið nefndir væringjar. Þessi rannsókn felur í sér endurmat á ritheimildum um ferðir norrænna manna í Austurvegi og er lögð sérstök áhersla á hvernig meta beri íslenskar heimildir um norræna menn í Austurvegi.
Undirstöður landbúnaðarsamfélagsins
Að rannsóknarverkefninu vinnur hópur af fræðimönnum og doktorsnemum. Markmið verkefnisins er að öðlast nákvæma vitneskju um félagsgerð, fjölskylduhætti og búskap í bændasamfélaginu við upphaf 18. aldar. Aðalheimildirnar eru jarðabók Árna og Páls 1702-1714, manntalið 1703 og kvikfjártalið 1703.
Verkefnum lokið
Heimsins hnoss
Rannsóknarverkefnið samanstendur af framlagi fræðimanna á sviði sagnfræði, efnismenningarfræða (fornleifafræði og mannfræði) sem og safnafræða. Þungi rannsóknarinnar er tvíþættur. Í fyrsta lagi er lögð áhersla á fyrirbærið safn (“the archive”) og hins vegar verður hugað að því hvernig söfn hafa verið nýtt í vísindum á fjölbreyttum sviðum akademískra rannsókna.
Reykholtsverkefnið
Rannsóknir á Reykholti í Borgarfirði. Unnið er að fornleifarannsóknum, rannsóknum á náttúrulegum og mannlegum umhverfisbreytingum og á Reykholti sem miðstöð kirkju, valda og bókmenningar.
Skriðuklaustur – híbýli helgra manna
Rannsóknarverkefni undir stjórn Steinunnar Kristjánsdóttur fornleifafræðings um byggingarlag Skriðuklausturs og afleiðingar þess fyrir ríkjandi hugmyndir um fyrirkomulag helgihalds á staðnum.
Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010
Samstarfsverkefni fimm sagnfræðinga sem ætlað er að fjalla á heildstæðan hátt um íslenska utanlandsverslun. Meðal viðfangsefna eru samband Íslendinga við umheiminn, áhrif á framleiðslu, atvinnulíf og líf almennings og afstaða Íslendinga til utanlandsverslunar. Verkefninu lauk með útgáfu ritverksins Líftaug landsins.
Saga Breiðafjarðar
Í þessu verkefni er fjallað um Breiðafjörðinn út frá kerfum og rými, sem hluta af stærri heild Norður-Atlantshafsins en einnig um minni rými innan þessa svæðis. Meginniðurstöður verkefnisins voru kynntar í þremur ritum um sögu Breiðfirðinga og ritrýndum fræðigreinum, lokaverkefnum háskólanema, alþýðlegum fyrirlestrum og greinum og sýningum.
Á mótum danskrar og íslenskrar menningar: Danir á Íslandi 1900–1970
Markmiðið með verkefninu er að rannsaka menningu og félagslega stöðu danskra manna sem búsettir voru á Íslandi á tímabilinu 1900-1970. Tungumálasérfræðingar og sagnfræðingar taka þátt í rannsókninni og fást þeir m.a. við tungutak Dananna, sjálfsmynd, menningarleg sérkenni, samfélagslega og efnahagslega stöðu þeirra í íslensku samfélagi og tengsl við Danmörku.