Námskeið á vegum Miðstöðvar munnlegrar sögu

Laugardaginn 13. september býður Miðstöð munnlegrar sögu námskeið þar sem munnleg saga og helstu aðferðir hennar verða kynntar. Námskeiðið verður kennt í Þjóðarbókhlöðu og er fjöldi þáttakenda takmarkaður við tólf. Þátttökugjald er 10.000 kr en 7000 krónur fyrir námsmenn. Innifalið í verði eru kennslugögn og kaffiveitingar í hléi fyrir og eftir hádegi.
Kennarar á námskeiðinu eru Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar, og Unnur María Bergsveinsdóttir, sagnfræðingur og verkefnastjóri Miðstöðvar munnlegrar sögu.

Dagskrá námskeiðsins er sem hér segir:
 
10.00-11.30 Hvað er munnleg saga?
Saga aðferðarinnar er rakin og sérkenni í hennar í samanburði við aðrar sagnfræðilegar aðferðir rædd. Vikið verður að notkun munnlegra heimilda innan annarra fræðigreina. Tæpt verður á helstu kenningum um minnið og staða munnlegrar sögu hérlendis kortlögð.
 
11.45-13.00 Undirbúningur viðtals og tækjabúnaður
Farið er yfir helstu atriði sem skipta máli þegar viðtal eða röð viðtala eru undirbúin. Leiðbeint verður um það hvernig best megi nálgast væntanlega viðmælendur. Tækjabúnaður og beiting hans kynnt.
 
14.00-15.30 Viðtalstækni
Hvað einkennir góðan spyril? Eftir hverju hlustar hann og hvernig? Þáttakendur spreyta sig á töku viðtals.
 
15.45-17.00 Eftir viðtalið
Úrvinnsla, frágangur og varðveisla viðtalsins verða rædd. Hvernig skal skrifa útdrátt úr viðtali, hvernig á að skrifa viðtalið upp og hvenær á hvor aðferðin við? Helstu forrit sem gagnast við úrvinnslu viðtala kynnt. Höfundaréttur og siðleg viðmið munnlegrar sögu skýrð.
 
 
Unnur María Bergsveinsdóttir veitir allar nánari upplýsingar og tekur við óskum um skráningu í síma 525-5776 eða í gegnum tölvupóst (unnurm@bok.hi.is). Athugið að í fyrra komust færri að en vildu. Sjá einnig á http://www.munnlegsaga.is
 
Miðstöð munnlegrar sögu
Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
Arngrímsgötu 3
107 Reykjavík
sími: 525-5775
gsm: 691-0374
netfang: unnurm@bok.hi.is
vefsíða: www.munnlegsaga.is

Níunda þing norrænna kvenna- og kynjasögufræðinga 11.-13. ágúst 2008

Fræðimenn og aðrir áhugasamir eru minntir á níunda þing norrænna kvenna- og kynjasögufræðinga sem haldið verður við Háskóla Íslands dagana 11.-13. ágúst 2008.
Á þinginu taka þátt margir fremstu sagnfræðingar Norðurlandanna og ættu íslenskri sagnfræðingar, og aðrir áhugasamir um sögu kvenna og kynja, og sagnfræði yfirhöfuð, að láta fram hjá sér fara tækifæri til þess að drekka í sig það sem efst er á baugi á þessu sviði. Í málstofum verður meðal annars rætt um kvennahreyfingar fyrr og nú, bæði á alþjóðlegum vettvangi og ‘heima fyrir’, sjálfsævisögulegar heimildir í sagnfræðirannsóknum, miðaldasögu, kyngervi og vinnu, kyngervi í evrópskum borgum 1600-1800, rými, mörk og líkama …
Pallborðin tvö snúast annars vegar um stöðu kvenna- og kynjasögu innan ‘hefðbundinnar’ sagnfræði, þar sem m.a. verður spurt að því hvers vegna kvennasaga og kynjasaga séu enn álitnar sérfag, jafnvel jaðarfag, í stað þess að vera eðlilegur hluti almennra sagnfræðirannsókna. Hitt pallborðið tekur á kvennahreyfingum á alþjóðlegum vettvangi.
Skráningarfrestur til 1. júní! Eftir það hækkar gjaldið.

Yfirskrift þingsins er Kyngervi, rými og mörk, sem tekur til þriggja mikilvægra hugtaka fræðasviðsins. Í fyrsta lagi kyngervishugtakið (gender) sem hefur verið eitt helsta greiningarhugtak kvennasögu- og kynjasögurannsókna í rúmlega tvo áratugi. Í öðru lagi rými og mörk (space, borders), sem oftar en ekki eru notuð saman. Fræðimenn hafa í vaxandi mæli beint sjónum að þeim rýmum sem konum hafa verið ætluð og spurt um sveigjanleika þeirra, og hvernig þau hafa breyst í tímans rás. Sjónum er því beint að rými og mörkum í tengslum við m.a. hugmyndina um aðskilin svið, stjórnmálaþátttöku, landafræði, kynhneigð o.s.frv.
Á ráðstefnunni verða þrír lykifyrirlesarar, pallborðsumræður, málstofur og hringborðsumræður tengdar yfirskrift þingsins. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar, en þessa dagana er verið að setja inn endanlegar lýsingar á fyrirlestrum, pallborðum o.s.frv.: www.qhist08.is
Ida Blom, prófessor  emerita við Háskólann í Bergen, flytur opnunarfyrirlestur þingins. Fyrirlesturinn er  Jóns Sigurðssonar fyrirlestur þessa árs og í boði Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands. Það þýðir að þessi viðburður er öllum opinn. Ida Blom er meðal þekktustu sagnfræðinga Norðurlanda og hefur hún skrifað fjölda greina og bóka, bæði um norska sögu en einnig í alþjóðlegu samhengi. Blom var nýlega kjörin heiðusfélagi í samtökum bandarískra sagnfræðinga, sjá t.d. viðtal Alice Kessler-Harris við Idu Blom: http://www.historians.org/Perspectives/issues/2006/0612/0612int1.cfm
Aðrir lykilfyrirlesarar eru:
Judith M. Bennett, prófessor í sagnfræði við University of Southern California, en hún hefur um árabil verið í fremstu röð vestrænna kvennasögu og kynjasögufræðinga. Bennett er miðaldafræðingur en nýjasta bók hennar heitir History Matters. Patriarchy and the Challenge of Feminism (2006), sjá http://www.upenn.edu/pennpress/book/1801.html
Bennett mun tala út frá þeirri bók í fyrirlestri sínum. Um Bennett sjá: http://college.usc.edu/faculty/faculty1008252.html

Ellen Dubois, prófessor í sagnfræði við University of California (UCLA). DuBois, hefur líkt og Ida Blom og Judith M. Bennett lagt stund á kvennasögu og kynjasögurannsóknir frá því á áttunda áratugi síðustu aldar og fylgt þeim breytingum sem orðið hafa í rannsóknaráherslum á fræðasviðinu. DuBois hefur einkum unnið að rannsóknum á fyrstu bylgju kvennahreyfinga og eftir hana liggja fjölmargar bækur og greinar á því sviði. Um DuBois sjá nánar: http://www.history.ucla.edu/people/faculty?lid=822
Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til 1. júní næstkomandi, eftir það hækkar gjaldið, sjá: www.qhist08.is
Ráðstefnugjaldið er kr. 20.000 fyrir almenna þátttakendur en fyrir stúdenta er gjaldið kr. 12.000. Innifalið er hádegismatur alla þrjá dagana, kaffiveitingar og hátíðarkvöldverður 13. ágúst.
Við vonum að sem flestir íslenskir fræðimenn og aðrir áhugasamir taki þátt í þinginu.
Ef ekki finnast svör við spurningum ykkar á vefsíðunni ráðstefnunnar, vinsamlega hafið þá samband við Auði Styrkársdóttur hjá Kvenansögusafni Íslands, audurs@bok.hi.is

Fundur um hádegisfundröð Sagnfræðingafélags Íslands

Áhugamenn um félagsstarf sagnfræðinga eru minntir á fund um hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingfélags Íslands.
Staður: Hús Sögufélags við Fischersund
Stund: Fimmtudagur 29. maí klukkan 20.00
Á fundinum gefst færi á að ræða vítt og breitt um hádeisfyrirlestrana, gildi þeirra fyrir félagið og fyrir fagið, hvað hefur tekist vel og hvað miður og hvernig má þróa fyrirlestraröðina í komanid misserum.
Frummælendur:
Sigurður Gylfi Magnússon fjallar um upphaf hádegisfunda sagnfræðingafélagsins og tilgang
Hrefna Róbertsdóttir ræðir um nýútkomið rit, Hádegisfyrirlestrar SI veturinn 2006-2007. Hvað er Sagnfræði? Rannsóknir og miðlun

Áhugamenn um félagsstarf sagnfræðinga eru minntir á fund um hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingfélags Íslands.
Staður: Hús Sögufélags við Fischersund
Stund: Fimmtudagur 29. maí klukkan 20.00
Á fundinum gefst færi á að ræða vítt og breitt um hádeisfyrirlestrana, gildi þeirra fyrir félagið og fyrir fagið, hvað hefur tekist vel og hvað miður og hvernig má þróa fyrirlestraröðina í komanid misserum.
Frummælendur:
Sigurður Gylfi Magnússon fjallar um upphaf hádegisfunda sagnfræðingafélagsins og tilgang
Hrefna Róbertsdóttir ræðir um nýútkomið rit, Hádegisfyrirlestrar SI veturinn 2006-2007. Hvað er Sagnfræði? Rannsóknir og miðlun

Fyrirlestur við Háskóla Íslands: Miðaldir og þjóðernishyggja nútímans

Prófessor Patrick Geary við Kaliforníuháskóla í Los Angeles flytur opinberan fyrirlestur í boði Hugvísindadeildar Háskóla Íslands þriðjudaginn 27. maí. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku í stofu 301 í Árnagarði og hefst kl. 16:00.
Allir velkomnir.

Enskt heiti fyrirlestrarins er The Middle Ages and Modern Nationalism og efni hans lýsir fyrirlesarinn á þessa leið:
Eftir fall Sovétríkjanna hafa þjóðernislegar hugmyndir skotið upp kollinum að nýju og orðið kraftmiklar í mörgum löndum sem töldust til Varsjárbandalagsins. Þær hafa valdið upplausn í fyrrum Júgóslavíu og Tékkóslavíku og hleypt vaxandi spennu í samskipti þjóða og  þjóðarbrota í öðrum löndum. Vesturlönd hafa ekki verið ósnortin af þessu afturhvarfi til þjóðernislegra hugmynda: Fasisma hefur vaxið ásmegin undrahratt í Þýskalandi, eftir 1989, og nærist að sumu leyti á ótta við innflutta múslíma. Á Ítalíu hafa forgöngumenn fasista og róttækrar aðskilnaðarstefnu, eins og þeirrar sem birtist í Norðurbandalaginu svonefnda, sett sérstök þjóðernisleg samkenni á oddinn. Í Frakklandi er hægri hreyfing, undir forystu Jean-Louis Le Pen, fjandsamleg innflytjendum, og hefur náð fótfestu sem pólitískt afl. Bæði í austri og vestri hafa minnihlutahópar sem hafnað var af þjóðríkjum 19. og 20. aldar, og lengi var haldið niðri, krafist réttar sem byggist á þeirra eigin, sérstöku samkennum  Það sem krafist er getur verið allt frá réttinum að læra eigið tungumál til þjóðlegs fullveldis.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um það hvernig ófáar af þessum hreyfingum endurvekja upprunasagnir miðalda og jafnframt þjóðernisumræðu sem byggist á söguskilningi frá 19. öld og samþætta þetta kröfum sínum og baráttu í samtímanum. Aðrir hafa brugðist við þessu með því að setja fram annars konar skilning á miðöldum í því skyni að styrkja evrópska samstöðu og eindrægni. Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessa ólíku afstöðu á gagnrýninn hátt og spurt hvað felist í þeirri viðleitni þjóðernissinna, og áhugamanna um evrópska samvinnu, eða alþjóðavæðingu, að gera miðaldir að tæki í málflutningi sínum. Bent verður á það hvernig nýr skilningur á miðöldum getur  afstýrt þeim háska sem fylgir báðum tilraunum til að nýta miðaldir fyrir stjórnmál nútímans.
Patrick Geary er prófessor í miðaldasagnfræði við Kaliforníuháskóla í Los Angeles og forseti Medieval Academy of America. Meðal bóka hans eru Before France and Germany: the Origins and Transformation of the Merovingian World og The Myth of Nations: The Medieval Origins of Europe og enn fremur Women at the Beginning: Women in Origin Myths from the Amazons to the Virgin Mary.  Þessa dagana annast hann kennslu við Hugvísindadeild Háskóla Íslands í námskeiði um fæðardeilur, friðarsamninga og meðferð deilna á miðöldum á námsbrautinni MA in Medieval Icelandic Studies. Kennslan á námsbrautinni er ætluð erlendum stúdentum og fer fram á ensku.

Maí 1968 – áhrif í dag (26.05.2008)

Fyrirlestur og umræður í Alliance française, Tryggvagötu 8, miðvikudaginn 28. maí kl. 20:00.
Franski blaðamaðurinn Eric Aeschimann heldur fyrirlestur um uppreisnina í Frakklandi í maí 1968 í tilefni af því að í þessum mánuði eru fjörutíu ár liðin frá þeim sögulegu atburðum. Mjög líflegar umræður hafa átt sér stað í Frakklandi og víðar um áhrif þessa tímabils á nútímann og hátt á annað hundrað bækur hafa verið gefnar út þar sem efnið er reifað frá margvíslegu sjónarhorni. Í fyrirlestrinum fer Eric Aeschimann yfir þessa umræðu og reynir að svara spurningunni hverju atburðirnir breyttu, nú þegar fjórir áratugir eru liðnir frá þeim, og ekki síst hvers vegna enn stafar ljómi af þessum viðburðum í dag.

Eric Aeschimann er blaðamaður við stórblaðið Líbération og hefur haft með höndum ritstjórn og vinnslu á greinaflokki um “mai 68” sem hefur verið birtur í Liberation undanfarna mánuði. Hann er auk þess höfundur tveggja skáldsagna og bóka um efnahags- og stjórnmál.
Fyrirlesturinn flytur hann á frönsku, en hann verður túlkaður á íslensku. Að fyrirlestri hans loknum verða umræður með þátttöku Viðars Þorsteinssonar heimspekings og nokkurra manna og kvenna sem sum hver urðu sjálf vitni að atburðunum, Sigurðar Pálssonar, Gérard Lemarquis og Dominique Plédel. Umræðum stýrir Torfi H. Tulinius prófessor.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Þessi kvöldstund er skipulögð í samvinnu við Háskóla Íslands og með aðstoð Sendiráðs Frakkland.

Að lesa Íslandssögu út úr grunnsýningu Þjóðminjasafnsins 11.05.

Næstkomandi þriðjudag, 13. maí kl. 12:05, mun Gunnar Karlsson sagnfræðingur leiða gesti um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins.
Hann kallar leiðsögn sína: Að lesa Íslandssögu út úr grunnsýningu Þjóðminjasafnsins.

Grunnsýning Þjóðminjasafnsins er í fljótu bragði séð aðallega sýning á gripum með stuttum skýringartextum og ekki alltaf augljóst hvers vegna einmitt þessir gripir eru valdir til sýningar. Sýningin er þó í grundvallaratriðum söguleg, val gripa, röðun þeirra og uppsetning ræðst af því að þeir segi sem mesta og mikilvægasta Íslandssögu. Leiðsögumaður ætlar að ganga um safnið og leitast við að skýra hver sú þjóðarsaga er sem einstök sýningaratriði eiga að segja. Sýnt verður fram á að þau segi sögu af landnámi Íslands og sambúð lands og þjóðar um aldir, trúarskiptum frá heiðni til kristni, goðaveldi þjóðveldistímans, auðlegð miðaldakirkjunnar, starfi vefkvenna, plágunum miklu, áhrifum Englendinga á enskri öld, siðaskiptum til Lútherstrúar, upphafi bókaprentunar, einveldi konungs og verslunareinokun, upphafi þéttbýlismyndunar, lífi þjóðar í baðstofum og á árabátum, þjóðríkismyndun á 19. öld og atvinnubyltingunni miklu í upphafi 20. aldar.

Reykjavíkur Akademían, Landsbókasafn Íslands Háskólabókasafn og Stofnun Árna Magnússonar 
efna til málþings um neftóbaksfræði í samstarfi við ORG ættfræðiþjónustuna ehf.

Laugardaginn 10. maí 

í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar frá klukkan 13.00 – 16.30
Neftóbaksfræði var um hríð hálfgert skammaryrði um um margvísa fræðaiðju sjálfmenntaðra alþýðufræðimanna: fróðleikssöfnun, ættfræðigrúsk og sagnaþáttaritun þar sem finna má frásagnarlist sem jafna má við Íslendingasögur. Þjóðlegur fróðleikur er annað heiti og virðulegra á þessari iðju. Vera má að lítilsvirðing fyrir þessari iðju hafi náð hámarki í orðum Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar þegar hann talaði um skrýtna neftóbakskarla sem ræktuðu fótsveppi.
Vissulega voru og eru neftóbaksfræðin meiri þrifnaðarsýsla heldur en þetta. Alþýðleg fræðaiðja var öflug og sérstæð menningarhefð öldum saman sem full ástæða er til að sýna fulla virðingu og skoða í nýju ljósi. Af þeim sökum er blásið til þessa málþings þar sem fjallað verður um ýmsar hliðar þessara fræða

Dagskrá:
13:00: Örn Hrafnkelsson forstöðumaður Handritadeildar Landsbókasafns Háskólabókasafns setur þingið
13:15: Sólveig Ólafsdóttir: Neftóbak og námsmenn
13:45: Jón Torfason talar um Gísla Konráðsson sagnaritara
14:15: Kaffihlé
Í kaffihléi kynnir Oddur Helgason ættfræðigrunn ORG ættfræðiþjónustunnar og fleira verður kynnt, af viðfangsefnum hinnar alþýðlegu fræðahefðar
15:00: Birgir Þórðarson segir frá skáldi sem þjóðin gleymdi
15:30: Luciano Dutra segir frá Brasilíuförum
16:00: Guðrún Ása Grímsdóttir talar um útgáfu ættfræðihandrita
Viðar Hreinsson stýrir málþinginu.

Kristinn Schram: Að endurheimta augnablikið: Þjóðfræði, kvikmyndatækni og íronía

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands. Þriðjudaginn 6. maí 2008, klukkan 12.05.
Er kvikmyndun sjálfsagt tæki í vettvangsrannsóknum? Verður menning varðveitt í hreyfimynd og hljóði og síðan endurupplifuð? Hvers eðlis eru þjóðfræðilegar kvikmyndir? Hafa kvikmyndir eðli? Í fyrirlestrinum verður fjallað um kosti og galla kvikmyndatækni við þjóðfræðilegar rannsóknir og tekin dæmi af rannsóknum Kristins frá bæði Íslandi og Skotlandi. Með hliðsjón af vettvangs- og varðveisluaðferðum fyrr og nú skoðar hann fyrirbæri eins og sjálfsmynd, ‘performans’, menningarf og íróníu og hvernig megi nálgast þau á tímum stafrænnar tækni og usla í þjóðernisumræðu.
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Kristinn Schram er forstöðumaður Þjóðfræðistofu, stundakennari við H.Í og doktorsnemi við Edinborgarháskóla.
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55.
Sjá einnig www.sagnfraedingafelag.net

Norrænn heimsendir – Dómsdagsmyndin frá Hólum og Völuspá, ráðstefna í Þjóðminjasafni Íslands 2.-3. maí 2008

Dagana 2.-3. maí verður haldin ráðstefna um Völuspá í Þjóðminjasafni Íslands. Efnt er til hennar í tengslum við sýninguna Á efsta degi – býsönsk dómsdagsmynd frá Hólum sem nú stendur yfir í Þjóðminjasafninu. Til sýnis eru brot útskorinna fjala, líkast til úr stórri býsanskri eða austrænni dómsdagsmynd sem prýtt hefur dómkirkju Jóns helga Ögmundssonar biskups á Hólum í Hjaltadal.
Á sýningunni er reynt er að endurskapa myndina samkvæmt tilgátuteikningu Harðar Ágústssonar listmálara

Myndin tilheyrir helgimyndahefð austurkirkjunnar sem á rætur í opinberunarritum ýmissa trúarbragða þar sem sagt er frá hamförum, stríðum og ragnarökum, jafnan í tengslum við uppgjör mannkyns á efsta degi. Þessi stef birtast á sérstakan hátt í Völuspá sem löngum hefur verið talið merkasta Eddukvæðið. Fræðimenn eru þó ekki á einu máli um uppruna þess og merkingu né að hve miklu leyti það er heiðið eða kristið.
Á ráðstefnunni fjalla íslenskir og erlendir fræðimenn um nýjustu rannsóknir á Völuspá og hugsanleg tengsl hennar við það myndefni sem blasað hefur við kirkjugestum á vesturvegg fyrstu dómkirkjunnar á Hólum. Hugarheimur kvæðisins verður kynntur með myndum, tali og tónum. Flutt verður tónlistar-drama byggt á Völuspá, Söngur völvunnar, sem Sverrir Guðjónsson hefur skapað í samvinnu við sænska tónskáldið og spunameistarann Sten Sandell.
Spádómur völvunnar sem fjallar um sköpun heimsins, ragnarök og nýtt upphaf er víða sýnilegur í nútímasamfélagi okkar. Yggdrasill veslast upp og hinn dimmi dreki flýgur yfir með líkin í fjöðrunum í lok ljóðsins. En þar er jafnframt von um nýtt upphaf og þau skilaboð flytur Söngur völvunnar: Vonin um nýtt upphaf og bjarta framtíð er handan við hornið, ef við höfum þor til þess að takast á við hið alvarlega ástand sem blasir við veröldinni í dag.
Ráðstefnan Dómsdagsmyndin frá Hólum og Völuspá er mikill viðburður sem getur orðið listamönnum, fræðimönnum og öðru áhugafólki hvatning til sköpunar. Jafnframt er það von þeirra sem að ráðstefnunni standa að hún muni stuðla að frekari þverfaglegum rannsóknum og umræðum um Völuspá.
Ráðstefnan er haldin á vegum Stofnunar Árna Magnússonar, Þjóðminjasafns Íslands og Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Ráðstefnustjóri er Pétur Pétursson prófessor, Háskóla Íslands.
Skráning á ráðstefnuna, kvöldverð og hátíðardagskrá
Tilkynna ber um þátttöku til Ásdísar Guðmundsdóttur skrifstofustjóra Guðfræðideildar H.Í. Sími: 354 5254348. Netfang: asdisg@hi.is.
Skráningargjald er 3000 ísl. kr. Innifalin eru ráðstefnugögn, kaffi og aðgöngumiði að tónlistargjörningnum Söngur völvunnar.
Tilkynna þarf sérstaklega um þátttöku í miðaldakvöldverði og hátíðardagskrá á Grand Hóteli Reykjavíkur sem kostar 4000 ísl. kr.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Greiðsla
Greiðið ráðstefnugjaldið og miðaldakvöldverðinn á reikning 137-26-85, kt. 600169-2039. Merkið Dómsdagsráðstefnan.
Frekari upplýsingar veita Pétur Pétursson petp@hi.is og Sigrún Kristjánsdóttir sigrunk@thjodminjasafn

Dagsbrúnarfyrirlesturinn 2008

Miðvikudaginn 30. apríl næstkomandi verður hinn árlegi Dagsbrúnarfyrirlestur haldinn í ReykjavíkurAkademíunni á 4. hæð í JL-húsinu að Hringbraut 121, kl. 16.00.Í þetta sinn verða fluttir 2 fyrirlestrar:
Þorgrímur Gestsson blaðamaður og rithöfundur: Öryggissjóður verkalýðsins – sagnfræði eða rannsóknarblaðamennska.
Hörður Zophaníasson skólastjóri: Aldarsaga Hlífar.
Allir velkomnir.

Atburðurinn er á vegum Bókasafns Dagsbrúnar, Eflingar-stéttarfélags og ReykjavíkurAkademíunnar.
Bókasafn Dagsbrúnar
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
107 Reykjavík
s. 562 856

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

CUAN100

CUAN100

article 10000486

article 10000487

article 10000488

article 10000489

article 10000490

article 10000491

article 10000492

article 10000493

article 10000494

article 10000495

article 10000496

article 10000497

article 10000498

article 10000499

article 10000500

article 10000501

article 10000502

article 10000503

article 10000504

article 10000505

article 10000506

article 10000507

article 10000508

article 10000509

article 10000510

article 10000511

article 10000512

article 10000513

article 10000514

article 10000515

article 10000516

article 10000517

article 10000518

article 10000519

article 10000520

article 10000521

article 10000522

article 10000523

article 10000524

article 10000525

article 10000526

article 10000527

article 10000528

article 10000529

article 10000530

article 10000531

article 10000532

article 10000533

article 10000534

article 10000535

article 10000536

article 10000537

article 10000538

article 10000539

article 10000540

article 10000541

article 10000542

article 10000543

article 10000544

article 10000545

mahjong 000106

mahjong 000107

mahjong 000108

mahjong 000109

mahjong 000110

mahjong 000111

mahjong 000112

mahjong 000113

mahjong 000114

mahjong 000115

mahjong 000116

mahjong 000117

mahjong 000118

mahjong 000119

mahjong 000120

mahjong 000121

mahjong 000122

mahjong 000123

mahjong 000124

mahjong 000125

mahjong 000126

mahjong 000127

mahjong 000128

mahjong 000129

mahjong 000130

mahjong 000131

mahjong 000132

mahjong 000133

mahjong 000134

mahjong 000135

mahjong 000136

mahjong 000137

mahjong 000138

mahjong 000139

mahjong 000140

mahjong 000141

mahjong 000142

mahjong 000143

mahjong 000144

mahjong 000145

mahjong 2990591

mahjong 2990592

mahjong 2990593

mahjong 2990594

mahjong 2990595

mahjong 2990596

mahjong 2990597

mahjong 2990598

mahjong 2990599

mahjong 2990600

mahjong 2990601

mahjong 2990602

mahjong 2990603

mahjong 2990604

mahjong 2990605

mahjong 2990606

mahjong 2990607

mahjong 2990608

mahjong 2990609

mahjong 2990610

mahjong 2990611

mahjong 2990612

mahjong 2990613

mahjong 2990614

mahjong 2990615

mahjong 2990616

mahjong 2990617

mahjong 2990618

mahjong 2990619

mahjong 2990620

mahjong 2990621

mahjong 2990622

mahjong 2990623

mahjong 2990624

mahjong 2990625

mahjong 2990626

mahjong 2990627

mahjong 2990628

mahjong 2990629

mahjong 2990630

article 2000521

article 2000522

article 2000523

article 2000524

article 2000525

article 2000526

article 2000527

article 2000528

article 2000529

article 2000530

article 2000531

article 2000532

article 2000533

article 2000534

article 2000535

article 2000536

article 2000537

article 2000538

article 2000539

article 2000540

article 2000541

article 2000542

article 2000543

article 2000544

article 2000545

article 2000546

article 2000547

article 2000548

article 2000549

article 2000550

article 2000551

article 2000552

article 2000553

article 2000554

article 2000555

article 2000556

article 2000557

article 2000558

article 2000559

article 2000560

article 7700331

article 7700332

article 7700333

article 7700334

article 7700335

article 7700336

article 7700337

article 7700338

article 7700339

article 7700340

article 7700341

article 7700342

article 7700343

article 7700344

article 7700345

article 7700346

article 7700347

article 7700348

article 7700349

article 7700350

article 7700351

article 7700352

article 7700353

article 7700354

article 7700355

article 7700356

article 7700357

article 7700358

article 7700359

article 7700360

article 7700361

article 7700362

article 7700363

article 7700364

article 7700365

article 7700366

article 7700367

article 7700368

article 7700369

article 7700370

article 7700371

article 7700372

article 7700373

article 7700374

article 7700375

article 7700376

article 7700377

article 7700378

article 7700379

article 7700380

article 7700381

article 7700382

article 7700383

article 7700384

article 7700385

article 7700386

article 7700387

article 7700388

article 7700389

article 7700390

article 7700391

article 7700392

article 7700393

article 7700394

article 7700395

article 7700396

article 7700397

article 7700398

article 7700399

article 7700400

article 238000561

article 238000562

article 238000563

article 238000564

article 238000565

article 238000566

article 238000567

article 238000568

article 238000569

article 238000570

article 238000571

article 238000572

article 238000573

article 238000574

article 238000575

article 238000576

article 238000577

article 238000578

article 238000579

article 238000580

article 238000581

article 238000582

article 238000583

article 238000584

article 238000585

article 238000586

article 238000587

article 238000588

article 238000589

article 238000590

mahjong 238000591

mahjong 238000592

mahjong 238000593

mahjong 238000594

mahjong 238000595

mahjong 238000596

mahjong 238000597

mahjong 238000598

mahjong 238000599

mahjong 238000600

mahjong 238000601

mahjong 238000602

mahjong 238000603

mahjong 238000604

mahjong 238000605

mahjong 238000606

mahjong 238000607

mahjong 238000608

mahjong 238000609

mahjong 238000610

mahjong 238000611

mahjong 238000612

mahjong 238000613

mahjong 238000614

mahjong 238000615

mahjong 238000616

mahjong 238000617

mahjong 238000618

mahjong 238000619

mahjong 238000620

article 838000743

article 838000744

article 838000745

article 838000746

article 838000747

article 838000748

article 838000749

article 838000750

article 838000751

article 838000752

article 838000753

article 838000754

article 838000755

article 838000756

article 838000757

article 838000758

article 838000759

article 838000760

article 838000761

article 838000762

article 838000763

article 838000764

article 838000765

article 838000766

article 838000767

article 838000768

article 838000769

article 838000770

article 838000771

article 838000772

mahjong 838000773

mahjong 838000774

mahjong 838000775

mahjong 838000776

mahjong 838000777

mahjong 838000778

mahjong 838000779

mahjong 838000780

mahjong 838000781

mahjong 838000782

mahjong 838000783

mahjong 838000784

mahjong 838000785

mahjong 838000786

mahjong 838000787

mahjong 838000788

mahjong 838000789

mahjong 838000790

mahjong 838000791

mahjong 838000792

mahjong 838000793

mahjong 838000794

mahjong 838000795

mahjong 838000796

mahjong 838000797

mahjong 838000798

mahjong 838000799

mahjong 838000800

mahjong 838000801

mahjong 838000802

article 9998000661

article 9998000662

article 9998000663

article 9998000664

article 9998000665

article 9998000666

article 9998000667

article 9998000668

article 9998000669

article 9998000670

article 9998000671

article 9998000672

article 9998000673

article 9998000674

article 9998000675

article 9998000676

article 9998000677

article 9998000678

article 9998000679

article 9998000680

article 9998000681

article 9998000682

article 9998000683

article 9998000684

article 9998000685

article 9998000686

article 9998000687

article 9998000688

article 9998000689

article 9998000690

article 9998000691

article 9998000692

article 9998000693

article 9998000694

article 9998000695

article 9998000696

article 9998000697

article 9998000698

article 9998000699

article 9998000700

news-1701