Rafrænn aðgangur að ljósmynda- og kortasöfnum landsins verður sífellt greiðari. Hér er vísað á söfn sem veita slíkan aðgang að safnkosti sínum.
Ljósmyndasöfn
Sarpur
Upplýsingakerfi sem Þjóðminjasafn og fjöldi annarra safna standa að. Auk ljósmynda eru varðveittar upplýsingar um m.a. listaverk, muni, fornleifar, hús, þjóðhætti og örnefnalýsingar.
Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni
Stærsta safn ljósmynda í landinu með um 7 milljónir mynda. Þar er að finna úrval þjóðlífs- og mannamynda frá því að ljósmyndatæknin var fundin upp árið 1839 til aldamótanna 2000 en líka besta úrval teiknaðra og málaðra manna- og þjóðlífsmynda frá Íslandi frá 16.-19. öld.
Ljósmyndasafn Akraness
Safnið varðveitir ljósmyndaefni sem hefur menningarsögulegt gildi fyrir Akranes. Meginuppistaða safnsins voru upphaflega ljósmyndir Helga Daníelssonar og Friðþjófs Helgasonar en vefur þess inniheldur nú um 40.000 myndir með helstu upplýsingum um ljósmyndara og myndefni.
Ljósmyndasafn Austurlands
Í ljósmyndasafninu eru yfir 10.000 tölvuskráðar myndir aðalsafns, en auk þess eru nokkur sérsöfn, þar á meðal ljósmyndasafn Vikublaðsins Austra. Því til viðbótar er allstórt safn póstkorta.
Ljósmyndasöfn Fjarðabyggðar
Í Fjarðabyggð eru rekin tvö ljósmyndasöfn, Ljósmyndasafn Eskifjarðar og Ljósmyndasafnið í Neskaupstað. Myndasafn Eskifjarðar má nálgast hér og myndasafn Neskaupstaðar má nálgast hér.
Ljósmyndasafn Héraðsskjalasafns Skagfirðinga
Á vef ljósmyndasafnsins er að finna um 180.000 myndir af Skagfirðingum og atburðum í Skagafirði.
Ljósmyndasafn Morgunblaðsins
Safn ljósmynda sem birst hafa í Morgunblaðinu frá 1999. Á vefnum eru reglulega settar upp ljósmyndasýningar, hver með sínu þema. Á vefnum er m.a. Ljósmyndasafn Ólafs K. Magnússonar með myndum frá árunum 1947-1996.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Safn í eigu Reykjavíkurborgar. Það varðveitir 6,5 milljónir ljósmynda ásamt ýmsum tækjum og áhöldum. Safnið leggur stund á rannsóknir á öllum sviðum ljósmyndunar, sér um safnkennslu, veitir ráðgjöf og þjónustu og heldur fjölda ljósmyndasýninga ár hvert.
Ljósmyndasafn Safnahúss Vestmannaeyja
Safnið er að uppistöðu ljósmyndaplötusafn Kjartans Guðmundssonar ljósmyndara frá Hörgsholti (1885-1950). Alls samanstendur safnið af 15.000 til 20.000 plötum.
Ljósmyndasafn Siglufjarðar
Ljósmyndasafnið inniheldur yfir 100.000 myndir og er til húsa á Síldarminjasafninu á Siglufirði.
Ljósmyndasafn Stykkishólms
Safn sem varðveitir og safnar ljósmyndaefni sem tengist sögu Stykkishólms. Meginuppistaða safnsins eru myndasöfn Jóhanns Rafnssonar og Árna Helgasonar.
Ljósmyndasafnið Ísafirði
Meginhluti safnsins eru myndir og filmur frá ljósmyndurum sem starfað hafa á Ísafirði frá 1890 til loka síðustu aldar. Einnig eru í safninu ljósmyndir frá einstaklingum og blöðum á Ísafirði. Safnkostur er um 500.000 ljósmyndir, á glerplötum, filmum og pappír auk stafrænna mynda.
Myndasafn Minjasafns Akureyrar
Safnið hefur að geyma milljónir mynda frá ýmsum ljósmyndurum.
Myndavefur Byggðasafns Reykjanesbæjar
Í myndasafni Byggðasafnsins eru nú um 100.000 myndir og eru stærstu söfnin frá Heimi Stígssyni, Jóni Tómassyni og Ólafi A. Þorsteinssyni. Hluti safnsins hefur verið settur á myndavefinn en fleiri myndum er bætt reglulega við.
Kortasöfn
Dönsku herforingjaráðskortin á kortaskjá Landmælinga Íslands
Dönsku herforingjaráðskortin hafa nú verið gerð aðgengileg á vef Landmælinga Íslands.
Íslandskort
Myndir af öllum helstu Íslandskortum frá upphafi til miðrar 20. aldar. Öllum kortunum fylgir söguleg lýsing bæði á íslensku og ensku. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.
Söguleg kort af Reykjavík
Á síðunni má finna nokkra valda gamla uppdrætti og kort úr safni Landupplýsingadeildar Reykjavíkurborgar.
Kvikmyndir
Kvikmyndasafn Íslands
Stofnun í eigu ríkisins sem safnar, skráir og varðveitir kvikmyndir og tengt efni og stundar rannsóknir á safnkostinum. Hlutverk safnsins er að miðla þekkingu um kvikmyndir og auka skilning á kvikmyndamiðlinum og menningarlegu gildi hans.