Málþing um vefnað og hannyrðir fyrr á öldum

Þjóðminjasafnið stendur fyrir málþingi um vefnað og hannyrðir fyrr á öldum næstkomandi laugardag, 22. mars kl. 13-15. Málþingið er öllum opið.

Dagskrá:
Dr. Áslaug Sverrisdóttir: Gamli íslenski vefstaðurinn og áherslur í rannsóknum
Dr. Hrefna Róbertsdóttir: Ullarvefsmiðjur Innréttinganna á 18. öld
Lilja Árnadóttir safnvörður: Spor miðalda í íslenskum útsaumi – Rannsóknir Elsu E. Guðjónsson á íslenskum refilsaumi
Kaffihlé
Kristín Bjarnadóttir rannsóknarlektor: Eitt spor og svo annað… um útsaumaðar handlínur
Kristín Schmidhauser Jónsdóttir: Fíngerð fegurð í sporum kvenna – Útsaumur frá síðari hluta 19. aldar og fram á 20. öld
Með málþinginu er þess minnst að Elsa E. Guðjónsson hefði orðið níræð þann 21. mars, hefði hún lifað. Elsa starfaði við Þjóðminjasafnið um áratugaskeið og bók um rannsóknir hennar á íslensku, refilsaumuðu altarisklæðunum er væntanleg á vegum safnsins á næsta ári.
Fundarstjóri er Bryndís Sverrisdóttir sviðsstjóri miðlunarsviðs

Leave a Reply