Tjáningafrelsi og nánd-Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins

Næstkomandi þriðjudag, þann 11. mars, mun Hrafnkell Lárusson flytja erindi
sem kallast „Tjáningarfrelsi og nánd: Um fjölmiðlun og fámenn samfélög.“
Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem
ber yfirskriftina „Nýjustu rannsóknir í sagnfræði.“ Fyrirlesturinn fer
fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst stundvíslega klukkan
12.05
Í lýsingu á erindinu segir:
Hvaða áhrif hefur staðsetning fjölmiðla á nálganir þeirra og tengsl við
þau samfélög sem þeir velja að fjalla um? Skiptir máli fyrir íbúa
dreifbýlla svæða að hafa svæðisbundna fjölmiðla eða nægir þeim að stærri
og fjarlægari fjölmiðlar „dekki“ þeirra svæði? Fjölmiðlar eru
upplýsingabrunnar, en þeir eru líka vettvangur skoðanaskipta og hafa áhrif
á skoðanamyndun og sýn fólks á samfélög, bæði sitt eigið og önnur. En hafa
fjölmiðlar áhrif á sjálfsmynd samfélaga? Skiptir máli að hafa „eigin
rödd“?
Blaðaútgáfa á Íslandi hefur verið samfelld frá 19. öld, en ljósvaka- og
netmiðlar spruttu síðar upp úr tækniþróun 20. aldar. Á árabilinu 1985-2010
tók fjölmiðlaumhverfi á Íslandi gríðarlegum breytingum, líkt og í
nágrannalöndunum. Rætt verður um breytt umhverfi fjölmiðlunar og mögulega
þróun hefðbundinna fjölmiðla á næstu árum.
Allir velkomnir!

Leave a Reply