Fjórða  íslenska söguþingið verður haldið dagana 7.–10. júní 2012. Að þinginu  standa Sagnfræðingafélag Íslands, Sagnfræðistofnun, Sögufélagið,  Reykjavíkurakademían og Félag sögukennara. Undirbúningsnefnd, sem er  skipuð fulltrúum þessarra félaga, hóf störf í ágúst og hefur ráðið  Kristbjörn Helga Björnsson sagnfræðing sem framkvæmdastjóra þingsins.  Þingið verður skipulagt í styttri og lengri málstofum (1½ eða 3 klst.)  og auglýsir undirbúningsnefndin hér með eftir hugmyndum um efni fyrir  málstofur eða fyrirlestra. Á þessu þingi verður sú nýjung að nú geta  fræðimenn kynnt rannsóknir sínar á veggspjöldum (posters) á þingstað.
Hugmyndir  um efni málstofa og/eða fyrirlestra skulu sendar til framkvæmdastjóra  þingsins Kristbjörns Helga Björnssonar á netfangið khb@storsaga.is eigi  síðar en 15. október nk.
 
Fyrir hönd undirbúningsnefndar
 
Guðmundur Hálfdanarson