Útilegumenn í sögu og bókmenntum

Félag um átjándu aldar fræði og
Menntaskólinn að Laugarvatni halda málþing í hátíðasal skólans laugardaginn 2. maí nk. Málþingið er haldið í tilefni þess að á árinu eru liðin hundrað ár frá fæðingu Ólafs Briem, fræðimanns og kennara við ML.
Það ber yfirskriftina Útilegumenn í sögu og bókmenntum, en saga útilegumanna var eitt af rannsóknarsviðum Ólafs. Málþingið hefst kl. 13:00 og því lýkur um kl. 17:00.

Dagskrá
Að loknu setningarávarpi Halldórs Páls Halldórssonar, skólameistara ML,
og ávarpi Þóru Kristjánsdóttur, formanns Félags um átjándu aldar fræði,
verða flutt sex erindi sem hér segir:
Kennarinn Ólafur Briem. Drög að mannlýsingu
Kristinn Kristmundsson, fv. skólameistari
Ólafur Briem og íslensk fræði
Vésteinn Ólason, fyrrverandi prófessor
Um útilegumannabyggðir á 17. öld
Guðrún Ása Grímsdóttir, sagnfræðingur
KAFFIHLÉ
Nýjar frásagnir af Fjalla-Eyvindi
Björk Ingimundardóttir, skjalavörður
Útilegumenn, almenningur og réttarfar í íslenskum viðburðasögum
Kristín Birna Kristjánsdóttir, þjóðfræðingur
Útilegumenn á leiksviði
Kristján Árnason, bókmenntafræðingur og rithöfundur
Fundarstjóri: Óskar H. Ólafsson, fv. aðstoðarskólameistari ML
Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur.
Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi.
Útdrættir úr erindum liggja fyrir á málþinginu.
Þeir verða síðar aðgengilegir á vefsíðu Félags um átjándu aldar fræði,
www.akademia.is/18.oldin
Kaffiveitingar verða í boði Menntaskólans að Laugarvatni.
ALLIR VELKOMNIR!
Málþingsgestum gefst kostur á að fá kvöldverð (fyllt lambalæri og
sveppasúpu, kaffi innifalið) í Tjaldmiðstöðinni Laugarvatni á sérstöku
tilboðsverði, 2.800 kr. Þeir sem ætla að færa sér þetta tilboð í nyt þurfa
að panta kvöldverðinn ekki síðar en þriðjudagskvöldið 28. apríl, í síma
486 1155 eða með tölvupósti: tjaldo (hjá) simnet.is, og láta þess þá getið
að þeir ætli að sækja málþingið.
Málþingsgestir eiga völ á gistingu í Farfuglaheimilinu Laugarvatni
aðfaranótt sunnu­dagsins 3. maí. Verð gistingar er sem hér segir (miðast
við þá sem eru ekki félagar í farfuglasamtökum): eins manns herbergi með
baði 7.200 kr., eins manns herbergi án baðs 5.000 kr., tveggja manna
herbergi með baði 9.000 kr., tveggja manna herbergi án baðs 6.800 kr. Enn
fremur er hægt að fá gistingu í herbergjum með þremur rúmum eða fleiri.
Fólk getur komið með rúmföt með sér en greiða þarf 890 kr. aukalega fyrir
að fá rúmföt á staðnum. Skoða má verðlistann í heild á vefsíðu
gistiheimilisins, www.laugarvatnhostel.is. Morgunverður
kostar 1.100 kr. Þeir sem vilja tryggja sér gistingu á farfuglaheimilinu
2. maí eru eindregið hvattir til að bóka sem fyrst (netfang
farfuglaheimilisins: laugarvatn (hjá) hostel.is; símar: 486 1215, 899
5409).