Trúlofunarhringurinn frá Skálholti og heilagleiki hjónabandsins

Þriðjudaginn 30. nóvember mun dr. Agnes S. Arnórsdóttir lektor við
sagnfræðideild Árósarháskóla flytja erindið “Trúlofunarhringurinn frá
Skálholti og heilagleiki hjónabandsins” í Þjóðminjasafni Íslands.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Við uppgröftinn í Skálholti árið 2003 fannst lítill hringur sem á er að
finna handaband utan um hjarta. Agnes mun færa rök fyrir því að hér sé um
trúlofunarhring að ræða, en slíkir hringar voru vinsælir um norðanverða
Evrópu á 15. og 16 öld. Í fyrirlestrinum fjallar Agnes um táknræna
merkingu slíkra hringa og áhrif kirkju á íslenska hjúskaparsiði.