Af hverju konur í (tónlistar) sögunni skipta máli – Fyrirlestur

Þriðjudaginn 18. maí stendur Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands (RIKK) að fyrirlestri sem ber yfirskriftina “Af hverju konur í (tónlistar) sögunni skipta máli”.
Fyrirlesari er Dr. Annette Kreutziger-Herr, prófessor í tónlistarfræði við tónlistarháskólann í Köln og mun hún flytja erindi sitt á ensku.
Fyrirlesturinn hefst kl. 17.00 í Sölvhóli, sal Listaháskóla Íslands við Sölvhólsgötu.
Allir velkomnir

Í fyrirlestri sínum fjallar Prof. Kreutziger-Herr um mikilvægi kvenna í vestrænni tónlistarsögu og skoðar dæmi um áhrif þeirra á strauma og stefnur í tónlistarmenningu allt frá tímum Hildegard  von Bingen og fram á okkar daga. Þeirri spurningu er velt upp hvort hlutur kvenna í tónlistarsögunni sé í raun jafn rýr og viðtekin söguskoðun gefur til kynna. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Að loknum fyrirlestri verður boðið upp á veitingar.
Fyrirlesturinn er haldinn með stuðningi frá Þýska sendiráðinu og í samvinnu við Listaháskóla Íslands og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands.