Sjúkdómar og lýðheilsa á átjándu og nítjándu öld

Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni
Sjúkdómar og lýðheilsa á átjándu og nítjándu öld
Flutt verða fjögur erindi sem hér segir:
„Að leysa kind frá konu“ — ljósmóðurlist og vísindi fyrr á öldum
Helga Gottfreðsdóttir, dósent við námsbraut í ljósmóðurfræði, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Almenningsfræðsla um heilbrigðismál 1749–1834
Halldór Baldursson, læknir
~ KAFFIHLÉ ~
Alþjóðlegar kenningar um lífslíkur og heilsufar í íslenskum veruleika 18. og 19. aldar
Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í félagssögu við menntavísindasvið Háskóla Íslands
Jón Hjaltalín (1807–1882) og heilnæmisfræði.
Umbótahugmyndir og áherslur
Sigurgeir Guðjónsson, sagnfræðingur
Fundarstjóri: Kristín Bragadóttir, doktorsnemi í sagnfræði
Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur.
Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi.
Veitingar verða á boðstólum í hléi fyrir framan fyrirlestrasalinn á 2. hæð.
Útdrættir úr erindum liggja frammi á málþinginu.
Þeir verða síðar aðgengilegir á heimasíðu félagsins, http://fraedi.is/18.oldin/

Leave a Reply