Norræna kvennasöguþingið 11.-14. ágúst 2008

Sagnfræðingar og aðrir áhugasamir fræðimenn eru minntir á norræna kvennasöguþingið sem haldið verður við Háskóla Íslands dagana 11.-14. ágúst 2008.
Yfirskrift þingsins er Kyngervi, rými og mörk.
Með því ávarpar þingið þrjú mikilvæg hugtök fræðasviðsins. Í fyrsta lagi kyngervishugtakið (gender) sem hefur verið eitt helsta greiningarhugtak kvennasögu- og kynjasögurannsókna í rúmlega tvo áratugi. Í öðru lagi rými og mörk (space, borders), sem oftar en ekki eru notuð saman. Fræðimenn hafa í vaxandi mæli beint sjónum að þeim rýmum sem konum hafa verið ætluð og spurt um sveigjanleika þeirra, og hvernig þau hafa breyst í tímans rás. Sjónum er því beint að rými og mörkum í tengslum við m.a. hugmyndina um aðskilin svið, stjórnmálaþátttöku, landafræði, kynhneigð o.s.frv.

Sagnfræðingar og aðrir áhugasamir fræðimenn eru minntir á
norræna kvennasöguþingið sem haldið verður við Háskóla Íslands dagana
11.-14. ágúst 2008.
Yfirskrift þingsins er Kyngervi, rými og mörk.
Með því ávarpar þingið þrjú mikilvæg hugtök fræðasviðsins. Í fyrsta
lagi kyngervishugtakið (gender) sem hefur verið eitt helsta
greiningarhugtak kvennasögu- og kynjasögurannsókna í rúmlega tvo
áratugi. Í öðru lagi rými og mörk (space, borders), sem oftar en ekki
eru notuð saman. Fræðimenn hafa í vaxandi mæli beint sjónum að þeim
rýmum sem konum hafa verið ætluð og spurt um sveigjanleika þeirra, og
hvernig þau hafa breyst í tímans rás. Sjónum er því beint að rými og
mörkum í tengslum við m.a. hugmyndina um aðskilin svið,
stjórnmálaþátttöku, landafræði, kynhneigð o.s.frv.
Á ráðstefnunni verða þrír lykifyrirlesarar, pallborðsumræður,
málstofur og hringborðsumræður tengdar yfirskrift þingsins.
Upplýsingar um yfirskriftir málstofa og hringborða, ásamt lýsingum,
er að finna á veffanginu: www.qhist08.is
Lykilfyrirlesarar þingsins eru sagnfræðingarnir Ida Blom, prófessor
emerita við Háskólann í Bergen, Judith M. Bennett, prófessor í
sagnfræði við Háskólann í Suður-Kaliforníu, and Ellen Dubois
prófessor í sagnfræði við UCLA.
Við hvetjum áhugasama fræðimenn til þess að senda inn tillögu að
fyrirlestri innan málstofa og/eða hringborða. Tillögurnar, um það bil
300 orð, skal senda á netfang Kvennasögusafns Íslands,
kona@bok.hi.is, rækilega merkt viðkomandi málstofu og nafni fræðimanns.
Tungumál ráðstefnunnar verða Norðurlandamálin (að vanda eru íslenska
og finnska undanskilin) og enska