Menntaspor – dagskrá til heiðurs Lofti Guttormssyni sjötugum
14.00 Ávarp – Ólafur Proppé rektor
14.10 Félagi Loftur – Dóra S. Bjarnason prófessor
14.40 Kynslóðin sem komst út úr kalda stríðinu – Gestur Guðmundsson prófessor
15.10 Menntun kvenna og lækkun ungbarnadauða á Íslandi – Ólöf Garðarsdóttir sagnfræðingur
15.40 Farskóli í hálfa öld – nokkrar svipmyndir – Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur
Stjórnandi dagskrár: Helgi Skúli Kjartansson prófessor
Menntaspor – dagskrá til heiðurs Lofti Guttormssyni sjötugum
Fyrir skömmu varð dr. Loftur Guttormsson, prófessor við Kennaraháskóla Íslands, sjötugur. Hann nýtur þeirrar sérstöðu að vera sá kennari sem fylgt hefur skólanum frá því fyrir stofnun hans árið 1971 og lætur nú af störfum eftir heilladrjúgt starf í fjóra áratugi.
Í tilefni af þessum tímamótum býður Kennaraháskólinn til dagskrár 2. maí næstkomandi í Skriðu, fyrirlestrasal skólans í Hamri við Háteigsveg. Byggist hún m.a. á efni afmælisrits sem Sögufélagið gefur út Lofti til heiðurs