Að málþinginu standa Vestfirðir á miðöldum, Háskólasetur Vestfjarða, Fjölmenningarsetur, Safn Jóns Sigurðssonar að Hrafnseyri og Héraðsskjalasafnið á Ísafirði.
Dagskráin hefst kl. 13:00 og lýkur með sameiginlegum kvöldverði á Ísafirði á föstudagskvöldið. Boðið verður upp á rútuferð frá Ísafirði að Hrafnseyri og aftur til baka að loknu málþingi. Gistimöguleikar á Ísafirði eru m.a. Hótel Ísafjörður og Gamla gistihúsið. Gistiaðstaða er einnig í Bolungarvík og í Súðavík.
Kaþólskir Vestfirðir í fortíð og nútíð – Málþing að Hrafnseyri föstudaginn 22. ágúst 2008
Föstudaginn 22. ágúst verður haldið málþing að Hrafnseyri við Arnarfjörð, sem ber yfirskriftina ,,Kaþólskir Vestfirðir í fortíð og nútíð”. Á meðal fyrirlesara verða Gunnvör Karlsdóttir, Margaret Cormack, Torfi H. Tulinius, Helga Kress og Michaela Kristin-Kali.
Ætlunin er að skoða í sögu miðaldakristninnar á svæðinu og þær breytingar sem nú eru að verða með fjölda nýbúa frá Póllandi og Filipseyjum. Eftirtaldir þættir verða skoðaðir út frá sjónarhóli sagnfræði, mannfræði, bókmenntafræði og guðfræði.