Hugarheimur miðaldakristni. Jón Björnsson sálfræðingur ,,eys úr viskubrunnum” í Þjóðminjasafni Íslands

Næstkomandi þriðjudag 27. nóvember klukkan 12:05 gengur Jón Björnsson sálfræðingur með gestum Þjóðminjasafnsins um hluta grunnsýningarinnar og um sérsýninguna í Bogasalnum, Á efsta degi – býsönsk dómsdagsmynd á Hólum.

Næstkomandi þriðjudag 27. nóvember klukkan 12:05 gengur Jón Björnsson sálfræðingur með gestum Þjóðminjasafnsins um hluta grunnsýningarinnar og um sérsýninguna í Bogasalnum, Á efsta degi – býsönsk dómsdagsmynd á Hólum.
Jón fjallar um hugmyndaheim eða heimsmynd kaþólsku kirkjunnar á ofanverðum miðöldum, meðal annars með hliðsjón af dómsdagsmyndum. Hann staldrar við nokkur dæmi á safninu sem sýna myndmál þessa heims og vísa til hans. ,,Dómsdagmyndir þessa tíma,“ segir Jón Björnsson, ,,voru eins konar myndasögur eða kennslumynd fyrir almúgann um þessa heimsmynd, – ekki síst ólæsa. Þær áttu að brýna fyrir fólki rétta hegðun, með því að benda á hvað myndi henda ef það breytti rangt. Samkvæmt heimsmynd miðaldakristni voru jarðneskir menn leiksoppar sífelldrar togstreitu góðs og ills. Annars vegar var Guð, Kristur, Guðsmóðir, englar, postular og dýrlingar á himnum, og kirkjan útibú þeirra á jörðinni. Hins vegar var Kölski, engill sem snérist til illsku, og árar hans með höfuðstöðvar í Helvíti, sem sennilega var í iðrum jarðar, og inngangur þess jafnvel hér á Íslandi.“
Jón veltir því meðal annars fyrir sér hvernig hafi verið að lifa við þessa heimsmynd. Hún er ólík því sem menn eiga að venjast í hinum flókna hugarheimi nútímans og virðist fela í sér meira ófrelsi. Að sumu leyti var þetta þó einfaldur hugarheimur með skýrum reglum og markmiðum og hefur því ef til vill líka gefið tilfinningu um öryggi. Jón leggur þó áherslu á að hann er einungis að tala um hugarheim þessa tíma, ekki hin raunverulegu lífsskilyrði eða raunheiminn.
Á sýningunni Á efsta degi í Bogasal Þjóðminjasafnsins má sjá fjalir með fögrum myndskurði sem varðveist hafa í brotum en eru taldar vera úr mikilli dómsdagsmynd sem gæti hafa skreytt Hóladómkirkju á 12. öld. Tilraun er gerð til endurgera dómsdagsmyndina samkvæmt tilgátu Harðar Ágústssonar.
Þetta er fimmta sérfræðileiðsögnin í vetur í röðinni Ausið úr viskubrunnum í Þjóðminjasafni Íslands. Sérfræðingar innan safns og utan ganga þá með gestum um safnið, segja frá sýningum og miðla af sérþekkingu sinni. Leiðsagnirnar eru fyrir alla.
Fólk er hvatt til að fjölmenna á Þjóðminjasafnið í hádeginu 27. nóvember og hlusta á hið áhugaverða erindi Jóns Björnssonar sálfræðings.