Í lýsingu á erindinu segir:
Menningarkimar hverskonar hafa löngum verið vettvangur andófs. Hverskonar samfélagslegar sviptingar og breytingar á valdajafnvægi má nýta til þess að víkka út þær glufur sem þegar eru til staðar og til þess að laða að nýja þátttakendur. Á slíkum stundum eru fyrstu viðbrögð valdhafanna jafnan virkar tilraunir til þess að draga, í gegnum orðræðu, úr trúverðugleika þeirrar hugmyndafræði sem menningarkiminn stendur fyrir.
Pönkið kom til Íslands á þeim tíma er Ísland var í þann veg að öðlast fullan aðgang að erlendri dægurmenningu. Í fjölmiðlaumræðu þess tíma er auðvelt að greina klassísk átök milli handhafa hins ríkjandi menningarforræðis og þeirra sem kröfðust þess að fá að taka þátt í endurskilgreiningu hins góða smekks. Með því að greina þá umræðu koma í ljós ýmsar áhugaverðar hliðar á þeim átökum sem gátu af sér íslenska pönkið, sérstæða blöndu af þjóðerniskennd og höfnunar hefðbundinnar íslenskrar sjálfsmyndar.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins 14. apríl
Erindi Unnar Maríu Bergsveinsdóttur „Loksins ertu sexí! Íslenskur menningararfur í meðförum pönkara“ verður flutt þriðjudaginn 14. apríl kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem ber yfirskriftina Hvað er andóf?