Ferð Evu Braun til Íslands í júlí 1939

Mánudaginn 12. apríl mun Hörður Geirsson starfsmaður Minjasafns Akureyrar og stundakennari við Háskólan á Akureyri flytja erindi um ferð Evu Braun til Íslands í júlí 1939. Eva Braun hefur helst verið þekkt fyrir að vera seinni eiginkona Adolfs Hitlers, en þegar Eva kom hingað til lands þetta sumar vissu fæstir af sambandi hennar við einræðisherrann.
Erindið fer fram í Háskóla Íslands, nánar tiltekið í stofu 206 í Odda og hefst kl. 12.
Allir velkomnir

Í júlí 1939, rétt áður en seinni heimsstyrjöldin skall á kom Eva Braun, seinna eiginkona Adolf Hitlers, til Íslands með skemmtiferðaskipinu Milwaukee. Á þeim tíma vissu fæstir af sambandi hennar við Hitler svo hún gat ferðast um allt óáreitt og óþekkt. Í þessari ferð tók hún talsvert af kvikmyndum sem hafa ekki verið sýndar oft hér á landi. Nálgun mín í þessu erindi verður útfrá þrem konum sem voru um borð í skemmtiferðaskipinu Milwaukee. Eina þeirra, Edith Gartner, hitti ég árið 1996 og tók við hana viðtal. Einnig var um borð Elisabeth Dick, ljósmyndari sem var á vegum KdF. Voru ljósmyndir hennar notaðar í bók sem heitir “Nordische Farbenwunder Eine Fahrt ins Reich der Mitternachtssonne mit 35 prachtvollen Photos von der Autorin auf Agfacolor.” Mun ég nota kafla úr bókinni til að sína þann hugsanagang sem var á þessum tíma ríkjandi í Þýskalandi nasismans varðandi Aria kynstofninn og Þúsund ára ríkið. Auk þessara kvenna verður aðeins fjallað um örlög skipsins Milwaukee og þá arfleifð sem vinnuveitandi Evu Braun, Heinrich Hoffman einkaljósmyndari Hitlers hefur skilið eftir í áróðursljósmyndun.
Hörður Geirsson leitaði að breskri Fairey Battle flugvél í 19 ár og fann hana 1999 og hefur á síðustu 10 árum staðið fyrir björgunarleiðöngrum til að bjarga líkamsleifum mannanna úr flugvélinni af jökli til greftrunar. Hörður hefur verið stundakennari við Háskólann á Akureyri, og kennt ljósmyndasögu undanfarin 5 ár. Hann hefur starfað á ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri frá 1985, þar sem safnkosturinn er 2,5 milljónir ljósmynda og hefur unnið að sýningum safnsins á hverju ári. Hörður hefur verið Formaður áhugaljósmyndaklúbbsins ÁLKA á Akureyri frá 2005 og með hléum áður. Hann kom að stofnun Flugsafns Íslands á Akureyrarflugvelli og unnið sýningar í safnið á hverju ári frá því það var stofnað árið 2000. Skrifað greinar, haldið fyrirlestra og unnið útvarpsþætti um flugsögu, auk þess haldið fyrirlestra um ljósmyndun og ljósmyndasögu. Hörður hefur aldið nokkrar ljósmyndasýningar, m.a. einkasýningu í Listagilinu á Akureyri 2008 og átt fjölda ljósmynda í blöðum og bókum.