Bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands, 13. febrúar (04.02.2008)

Hinn árlegi bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldinn miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20:00 í húsakynnum Sögufélags í Fischersundi.

Hinn árlegi bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldinn miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20:00 í húsakynnum Sögufélags í Fischersundi.
Eftirfarandi bækur, sem komu út árið 2007,  verða teknar til umfjöllunar:
1) Silfur hafsins – gull Íslands: síldarsaga Íslendinga: margir höfundar.
Framsögumaður: Guðmundur Jónsson sagnfræðingur
2) Kristín Jónsdóttir, “Hlustaðu á þína innri rödd”. Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987
Framsögumaður: Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur
3) Friðrik G. Olgeirsson, Snert hörpu mína : ævisaga Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi
Framsögumaður: Gunnþórunn Guðmundsdóttir bókmenntafræðingur
Áhugasamir eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í umræðum.
Hver framsögumaður talar í 10 til 15 mínútur og svo taka við almennar umræður.
Léttar veitingar verða að venju á boðstólum á vægu verði.
Sögufélag og Sagnfræðingafélags Íslands