Blessað stríðið – Ísland í síðari heimsstyrjöldinni – Sýning

Þriðjudaginn 1. júní kl. 16 verður opnuð í Kornhúsinu í Árbæjarsafni sýning um stríðsárin og áhrif styrjaldarinnar á mannlíf og menningu í Reykjavík.
Um þessar mundir eru liðin 70 ár frá því að breskur her steig á land í Reykjavík og Ísland dróst inn í hringiðu heimsviðburða. Í kjölfarið urðu gífurlegar breytingar á Íslensku samfélagi.
Sýning þessi var unnin af Minjasafni Reykjavíkur og nemendum í námskeiðinu Menningarminjar, söfn og sýningar en námskeiðið er hluti af námsleið í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Þá er sýningin gerð í samvinnu við Kvikmyndasafn Íslands.

Þann 10. maí árið 1940 hernámu Bretar Ísland og rúmu ári síðar tóku Bandaríkjamenn við hervernd á landinu. Koma herliðsins hafði í för með sér gífurlegar breytingar á íslensku samfélagi, ekki síst í Reykjavík.
Herliðið stóð fyrir ýmsum framkvæmdum og fengu margir Íslendingar vinnu við mannvirkjagerð og ýmsa þjónustu. Þá dró úr atvinnuleysi sem hafði ríkt um langan tíma og efnahagur Íslands vænkaðist verulega. Þrátt fyrir hafnbann Þjóðverja og hættu á árásum kafbáta seldu Íslendingar mikið af fiski til Bretlands en yfir 200 íslenskir sjómenn fórust í heimsstyrjöldinni síðari.
Árið 1940 voru Íslendingar um 120.000 og fjöldi íbúa í höfuðstaðnum var um 38.000 manns. Í júní 1943 töldu herir bandamanna á Íslandi um 50 þúsund manns og stærstur hluti herliðsins var í Reykjavík og nágrenni. Þegar mest lét slagaði fjöldi hermanna hátt í fjölda íslenskra karlmanna. Samskipti Íslendinga við hina erlendu heri gekk í flesta staði vel og nokkuð var um sambönd milli hermanna og íslenskra kvenna. Mörgum hermönnum þótti hins vegar  dvölin á Íslandi erfið, þeir kvörtuðu undan kulda og tilbreytingaleysi.
Bæjarlífið í Reykjavík tók miklum breytingum á stríðsárunum. Herbúðir settu svip sinn á umhverfið og hermenn voru áberandi. Veitingasala, verslun og ýmis þjónusta blómstraði. Dægurmenning, skemmtanalíf og almenn neysla breyttist verulega með nýjum menningarstraumum og auknum innflutningi. Reykjavík óx og dafnaði og í lok stíðsins breyttust herskálahverfin í íbúðabyggð.
Í ljósi þessara miklu samfélagsbreytinga hefur stundum verið talað um heimsstyrjöldina síðari sem Blessað stríðið.